Persónuverndaryfirlýsing

Sólningar ehf.

Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá hvernig Sólning ehf. (hér eftir Sólning), kt. 461009-0420, Klettagörðum 8-10, 104 Reykjavík, vinnur persónugreinanlegrar upplýsingar um einstaklinga (hér eftir einnig „þú“).  Yfirlýsingin fjallar einkum um vinnslu persónuupplýsinga þegar einstaklingar:

  • hafa samband við fyrirtækið, hvort sem það er í gegnum tölvupóst, síma eða samfélagsmiðla
  • heimsækja fyrirtækið eða heimasíðu okkar, solning.is 
  • skrá sig á póstlista okkar
  • notfæra sér þjónustu okkar

 

Öflug persónuvernd er Sólningu kappsmál og leggjum við mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 (hér eftir persónuverndarlög).

 

Hvaða persónuupplýsingum safnar Sólning um þig og hver er tilgangurinn með söfnuninni

Sólning leggur áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. Sólning vinnur persónuupplýsingar ekki frekar í óskyldum tilgangi nema einstaklingi sé tilkynnt um slíkt og þá heimild sem vinnslan byggist á.

Sólning safnar, eftir því sem við á, einkum eftirfarandi persónuupplýsingum:

  • auðkennis- og samskiptaupplýsingum, s.s. nafni og kennitölu, heimilisfangi, tölvupóstfangi og símanúmeri, þ.á.m. vegna tengiliða lögaðila í viðskiptum við Sólningu
  • stafrænum fótsporum í tengslum við notkun á heimasíðu okkar
  • upplýsingum í tengslum við val á markaðssetningu
  • samtölum í gegnum samfélagsmiðla
  • banka- / greiðsluupplýsingum
  • myndefni úr upptökum eftirlitsmyndavéla, en eftirlitsmyndavélar eru staðsettar í húsnæðum okkar og á lóð
  • mynd og númeri ökumanna atvinnubifreiða sem þjónustaðar eru af Sólningu
  • upplýsingum um staðsetningu atvinnubifreiða og tækja sem þjónustuð eru af Sólningu
  • bíla- og tækjanúmerum

 

Tilgangur með söfnun persónuupplýsinganna er að:

  • sinna eigna- og öryggisvörslu, t.a.m. í gegnum eftirlitsmyndavélar
  • stunda markaðssetningu
  • eftirlit með ökutækjum
  • þjónusta viðskiptavini
  • sinna daglegum rekstri, þ.á.m. starfsmannahaldi og tímabókunum

 

Þegar þú notar heimasíðuna okkar www.solning.is söfnum við upplýsingum um notkun þína, m.a. um IP tölu, tegund eða útgáfu vafra sem þú notar, tímasetningu og tímalengd heimsóknar og hvaða undirsíður þú heimsækir innan heimasíðu Sólningar. Hér má finna nánari upplýsingar um notkun okkar á vafrakökum (e. cookies). https://www.solning.is/vafrakokur

 

Lagalegur grundvöllur fyrir vinnslu

Sólning safnar og vinnur persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi heimildum:

  • Til að uppfylla samningsskyldu. Þessi heimild á t.a.m við í hjólbarðaþjónustu fyrirtækisins
  • Til að uppfylla lagaskyldu. Þessi heimild á einkum við í tengslum við gögn sem falla undir bókhaldslög.
  • Til að vernda lögmæta hagsmuni félagsins. Þessi heimild á einkum við í tengslum við myndavélaeftirlit, í eigna- og öryggisvörsluskyni, ásamt innheimtu vanskilakrafna.

 

Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar um þig

Sólning geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan. Sem dæmi er þeim upplýsingum sem verða til í gegnum myndavélaeftirlit eytt eftir 30 daga. Þær upplýsingar sem teljast til bókhaldsgagna eru geymdar í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.

 

Frá hverjum safnar Sólning persónuupplýsingum þínum

Við söfnum persónuupplýsingum frá þér og í vissum tilvikum utanaðkomandi aðilum sem þjónusta fyrirtækið í tengslum við markaðsstarf.

 

Hvenær miðlar Sólning persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila og af hverju

Sólning selur ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingar um þig. Sólning miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðju aðila þar sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda, umboðsmann eða verktaka sem ráðinn er af hálfu Sólningar til þess að vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna aðila sem sjá um launavinnslu, upplýsingatækni- og fjarskiptaþjónustu.

Teljist aðili sem Sólning miðlar persónuupplýsingum til vera vinnsluaðili gerir Sólning vinnslusamning við viðkomandi aðila. Vinnslusamningar kveða meðal annars á um skyldu vinnsluaðila til að halda persónuupplýsingum öruggum og að nota þær ekki í öðrum tilgangi. Sólning deilir einnig persónuupplýsingum með þriðju aðilum þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni fyrirtækisins, eins og við innheimtu á vanskilakröfum.

Ef til þess kemur að vinnsluaðili vinni, þ.m.t. hýsi, gögn utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES svæðið), þá gætir Sólning að því að lögmætur grundvöllur sé til staðar samkvæmt persónuverndarlögum.

Persónuverndaryfirlýsing Sólningar nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þriðju aðila, þ. á. m. vefhýsingaraðila þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Google og Microsoft.

Jafnframt viljum við benda þér á að þegar þú ferð inn á eða hefur samband við okkur í gegnum samfélagsmiðlasíður okkar, þá gæti verið að veitendur samfélagsmiðlaþjónustanna fái aðgang að upplýsingum, þ.m.t. að koma fyrir vafrakökum í tæki þínu í greiningarskyni, og hvetjum við þig því til að kynna þér vel persónuverndaryfirlýsingar þeirra.

 

Öryggi persónuupplýsinga og tilkynning um öryggisbrot

Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er Sólning mikilvægt og höfum við gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu okkar um öryggi. Komi upp öryggisbrot er varðar þínar persónuupplýsingar, og teljist slíkt brot hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án ótilhlýðilegrar tafar. Í þessum skilningi telst öryggisbrot atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi.

 

Réttindi þín

Með fyrirvara um þau skilyrði sem nánar er fjallað um í gildandi löggjöf um persónuvernd, þá átt þú rétt á að:

  • fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar fyrirtækið hefur skráð um þig og uppruna þeirra, sem og upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar um þig,
  • fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem eru unnar um þig, eða óska eftir að þær séu sendar til þriðja aðila,
  • persónuupplýsingar þínar séu uppfærðar og leiðréttar ef tilefni er til,
  • Sólning eyði persónuupplýsingum þínum ef ekki er málefnaleg eða lagaleg skylda til að varðveita þær,
  • koma á framfæri andmælum ef þú vilt takmarka eða koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar séu unnar,
  • upplýsingar um það hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, á hvaða rökum slík ákvarðanataka er byggð og endurskoðun á sjálfvirkri ákvarðanatöku,
  • afturkalla samþykki þitt um að Sólning megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild.

 

Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega fyrirspurn á personuvernd@klettur.is. Við óskum þess að fyrirspurninni fylgi útfyllt eyðublað sem finna má á heimasíðu okkar: personuverndarbeidni. Við munum staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregðast við beiðnum innan mánaðar frá móttöku. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. Ekki er innheimt gjald þegar einstaklingar nýta rétt sinn í samræmi við ofangreint, nema í þeim tilvikum sem beiðni telst óhófleg eða augljóslega tilefnislaus.

Þú hefur einnig rétt  til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu þeirra, www.personuvernd.is.

 

Frekari upplýsingar

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að persónuupplýsingum þínum þá bendum við þér á að senda erindið á neðangreint póstfang eða hafa samband við skiptiborð Kletts, sem er eigandi Sólningar ehf.

Klettur – sala og þjónusta ehf.

Klettagarðar 8-10

104 Reykjavík

s: 590-5100

 

Yfirferð og endurskoðun persónuverndarstefnu Sólningar

Persónuverndarstefna Sólningar er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til. Síðast var stefnan uppfærð þann 21.12.2020.